Góa Linda Súkkulaði fyrir gosbrunna 1,5 kg
Góa Linda Súkkulaði fyrir gosbrunna 1,5 kg
Veldu súkkulaði við hæfi, rjóma, dökkt eða hvítt.
Æðislegt að hafa fullt af skornum Jarðarberjum, melonum, bönunum og jafnvel ananas og ekki gleyma sykurpúðunum
Afgreiðslustaður: Ísbúðin í Garðabæ
Ath. Ekki er hægt að nota hvaða súkkulaði sem er í brunnana og varast skal að nota of þykkt súkkulaði þar sem vélarnar ráða ekki við þannig súkkulaði, við seljum 3 tegundir af súkkulaði frá Góu Lindu og við bætum í það kakósmjöri, einfaldlega bræðið súkkulaðið í örbylgju eða í heitu vatni og hellið svo í vélina.
Setjið brunninn í gang áður en súkkulaðið er sett í vélina. ca. 1-2 mín áður og hellið súkkulaðinu beint í skálina (ekki hella efst í brunninn)
Einfalt, auðvelt og gerir veisluborðið einstaklega fallegt og girnilegt.
ath þetta er bara súkkulaðið, vélin fylgir ekki með.
Hægt er að leigja brunn með súkkulaði hér á síðunni.