Hvernig velur þú ísveislu fyrir afmælið?


By Ísbúðin Garðabæ
1 min read

Hvernig velur þú ísveislu fyrir afmælið?

Hvernig velur þú ísveislu fyrir afmælið?

Afmæli eru besti tíminn til að gera eitthvað öðruvísi. Ísveisla er skemmtileg leið til að fá gesti til að brosa, og hún þarf ekki að vera flókin í skipulagi. Hér er það sem þarf að hugsa um þegar þú velur ísveislu.

Hversu margir koma?

Byrjaðu á fjölda gesta. Þegar þú veist hversu margir koma getur þú valið réttan skammt og tækjabúnað. Ísveislur henta bæði litlum fjölskylduboðum og stærri veislum með vinum og ættingjum.

Hvaða aldurshópur er í veislunni?

Börn elska krapavélar og candyfloss, en fullorðnir kunna oft betur að meta ísinn með ávöxtum, súkkulaði eða öðru góðgæti. Hugsaðu um blöndu af réttum sem höfðar til allra gesta.

Eitthvað fyrir alla?

Já við bjóðum uppá krap, shake, bragðaref, ís í boxi, ís í brauði, boozt, juice, smoothie, kökur, heitt epla pie, kakó, kaffi, gosdrykki, pinnaís, kúluís, skyrbar, ísrétti, sunday's, kaffirétti eins og shake og frappó og margt fleira

Heima eða annarsstaðar?

Ísveisla getur farið fram heima í garðinum, í sal eða á vinnustaðnum. Athugaðu hvar veislan verður haldin og hvort þú þurfir aðstöðu fyrir tækin, eins og rafmagn og pláss.  Einnig er hægt að fá að koma til okkar fyrir opnun til okkar með hópa.

Næstu skref

Ísbúðin í Garðabæ sér um veisluna. Við bjóðum ísveislur með heimsendingu, auk tækjaleigu eins og krapavéla, poppvéla og candyfloss véla. Ókeypis heimsending er á pantanir yfir 100.000 kr. Hafðu samband við okkur í gegnum isbud.is til að fá tilboð.



Þarftu hugmyndir...

Skemmtilegar hugmyndir fyrir veisluna

1 of 10