Sumar 2026 - nýjungar

Það er alltaf sérstök tilhlökkun hjá okkur í Ísbúðinni í Garðabæ þegar fer að vora. Sumarið færir með sér nýjungar, ferska stemningu og fullt af spennandi viðbótum á matseðlinum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og gera sumarið enn sætara.


By Sófus Gústavsson
2 min read

Sumar 2026 - nýjungar

Það er alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur í Ísbúðinni í Garðabæ þegar fer að vora. Þá koma nýjungar fyrir sumarið og nýtt starfsfólk bætist í hópinn, en margir eru einmitt að hefja sitt allra fyrsta starf hjá okkur.

Meðal nýjunga í sumar er til dæmis nýr krakkarefur sem verður með einni nammitegund og kostar aðeins 990 kr.

Einnig ætlum við að bjóða upp á heitar kökur, eins og brownie, eplapæ og hafrakökur, sem við hitum í nýja ofninum okkar og berum fram með ís og heitri íssósu. Þetta er eitthvað sem allir verða að prófa, og líklega bætast fleiri tegundir við þegar líður á sumarið.

Sósurnar og dýfurnar hafa líka fengið nýja vini. Í sumar verðum við með 18 tegundir af dýfum, 11 heitar sósur og 27 kaldar sósur. Hér ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Krapið tekur líka smá breytingum. Ananas og mangó bætast í hópinn, en sítrónubragðið kveður.

Ís úr vél er eitthvað sem allir elska, og undanfarin ár höfum við verið með 7–9 bragðtegundir. Í ár verðum við með fjórar tegundir, en einnig getum við hrært aðrar tegundir og sett í brauðform eftir pöntunum. Bragðtegundirnar sem við notum koma frá Kjörís, sem er okkar helsti samstarfsaðili, og þetta verkefni er unnið í góðri samvinnu við þau.

Heilsubarinn fær líka alltaf einhverjar nýjungar. Nýlega bættum við við acai-skál og núna er komið að próteinskál, uppskrift sem við fengum frá vinum okkar í Ísbúðinni á Akureyri.

Vetrartilboðin okkar slógu í gegn. Við vorum meðal annars með tvo stóra shake á 2.000 kr. og pararef, sem eru tveir miðstærðar bragðarefir, á 2.500 kr. Við höfum ákveðið að vera með tilboð í allt sumar og þau verða kynnt á næstu dögum.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem oftast í sumar!



Þarftu hugmyndir...

Skemmtilegar hugmyndir fyrir veisluna

1 of 10